Gæludýraeigandinn ég

…..er eins og undanfarin ár svolítið uggandi yfir látunum í flugeldunum kringum áramótin, en í sjálfu sér væri þetta ekkert mál ef þetta væri bara þessi hvellur á áramótunum og svo rest á þrettándanum. 

En því miður þá virðist þetta standa alveg upp undir mánuð frá því að sala á flugeldum hefst strax eftir jól sem er öllu verra fyrir okkur sem erum gæludýraeigendur og t.d. geltir hundurinn minn í hvert skipti sem hann heyrir í sprengju, sem getur verið ansi leiðinlegt til lengdar þegar þetta er jafnvel á hverri einustu nóttu lungann úr janúar og svo sannarlega vildi ég óska þess að þetta væri ekki svona, en að sjálfsögðu er ég búinn að kaupa hjá björgunarfélaginu okkar og ætla að sprengja á miðnætti í kvöld, en það sem við gerum stundum strax eftir skaupið er að fara með gæludýrin okkar niður í herbergi niðri í kjallaranum og spila þar róandi tónlist á góðum styrk og eitthvert okkar situr hjá þeim, en það dugar ekki alltaf til og eftir því sem gæludýraeigendum hér í Eyjum fjölgar, og þeim hefur fjölgað mikið, þá heyrir maður þetta víða og set þessa grein fram ekki sem gagnrýni, heldur fyrst og fremst sem skoðun um það, hvernig ég hefði viljað hafa þetta ef það væri hægt þ.e.a.s. að sprengja villt og galið um áramótin og á þrettándanum og gefa okkur gæludýraeigendum frið þess á milli. 

Annað sem mig langar að koma á framfæri varðandi gæludýrin okkar er þetta algjöra aðstöðuleysi í Herjólfi. Sem dæmi um það, þá lést lítil kisa í bíl í Herjólfi núna í desember, en eigandanum hafði verið meinað um að fá að sitja hjá kisunni og maður spyr sig hvort ekki væri möguleiki á því að gera aðstöðu um borð fyrir gæludýraeigendur, en þar er engin aðstaða eins og er, hvorki fyrir gæludýrin né eigendur þeirra og ég beini þessari fyrirspurn til þeirra sem sitja í stjórn Herjólfs ohf sem og framkvæmdastjóra með von um skjót viðbrögð. 

Óska öllum gæludýraeigendum og öllum öðrum árs og friðar.

 

Nýjustu fréttir

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
Starfsmenn World Class vinna við lokafrágang
Gleðisprengjur sprungu með látum
Samgöngur til Eyja til umræðu á Alþingi í dag
Birna Berg – Íþróttamaður mánaðarins
Gleymum því ekki að það er ekki búið að laga neitt
Karlalið ÍBV tapaði gegn Víkingum
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.