Karla lið ÍBV mætir Gróttu í sjöundu umferð Olísdeildar karla í kvöld í Vestmannaeyjum. Lið Gróttu situr í níunda sæti með fjögur stig en lið ÍBV í því fimmta með átta stig. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á ÍBVTV.