Kvennalið ÍBV mætir Fylki á Würth vellinum, í Árbænum Reykjavík, kl. 18:00 í kvöld. Um er að ræða 9. umferð deildarinnar og situr ÍBV 6. sæti með 9 stig. Kvennalið Fylkis situr í 8. sæti með sama stigafjölda en lægri markatölu. Valur er í fyrsta sæti með 17. stig.
ÍBV töpuðu þremur síðustu leikjum sínum og síðast gegn Þrótti á heimavelli. Líkt og Eyjafréttir greindu frá hættu Andri Ólafsson og Birkir Heimisson með liðið í kjölfarið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson stýrir liðinu tímabundið.