Já þið lásuð rétt, félagarnir í CCR Bandinu / Huldumenn Sigurgeir Sigmunds gítarleikari, Biggi Gildra Haralds söngvari, Biggi Nielsen trommuleikari og Ingimundur Benjamín bassaleikari ætla að telja í bestu lög John Fogerty og félaga í Creedence Clearwater Revival laugardaginn 4. Sept í Tónleikakrónni á Skipasandi ( Strandvegi 72 ) Miðasala er í fullum gangi í Tvistinum og um að gera að tryggja sér miða í tíma þar sem um mjög takmarkað magn miða er í boði. Miðaverðið er aðeins kr. 3500-  Húsið mun opna kl. 20:30 og tónleikar hefjast kl. 21:00 og standa til kl. 23:00. Reynt verður eftir fremsta megni að huga vel að öllum helstu sóttvörnum. Hlökkum til að spila fyrir ykkur!