Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru og hafa verið mitt hjartans mál. Ég hef sem þingmaður þessa kjördæmis talað lengi fyrir því í ræðu og riti að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum verði að vera skilvirkar. Sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fékk ég tækifæri til að efna þau loforð sem ég gaf og hef unnið sleitulaust að því að bæta samgöngur til Vestmannaeyjar, gera þær skilvirkari í þágu íbúana. Það er ekkert launungarmál að samgöngur hafa gríðarlega mikil áhrif á íbúaþróun, hvort að unga fólkið vilji koma til baka og setjast að og þær spila stórt hlutverk í komu ferðamanna til Vestmannaeyja. Það er ánægjulegt að heyra að fjöldi farþegar sem hefur farið með Herjólfi er á pari við venjulegt árferði, með Þjóðhátíð. Í lok kjörtímabils er rétt að rifja upp það sem gert hefur verið undir minni stjórn.
Herjólfur
Eitt af mínum fyrstu verkum í samgönguráðuneytinu var að breyta fyrri ákvörðun um Vestmannaeyjaferju í samræmi við loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar þannig að ferjan gangi fyrir rafmagni.
Í framhaldi fól samgönguráðuneytið Vegagerðinni að semja um breytingar á hönnun nýju Vestmannaeyjaferjunnar í því skyni að hún muni ganga því sem næst eingöngu fyrir rafmagni.
Nýjan ferjan kom, íbúar kusu um að nota áfram Herjólfsnafnið og gamli Herjólfur er til taks. Ég hef talað um fyrir þessu og í mínum huga er þetta skýrt. Nýr rafvæddur Herjólfur hefur sannað sig.
Nokkrar útfærslur á rekstrarmódeli Herjólfs komu til greina. Í mínum huga er skýrt að endurbættur rekstrarsamningur sem Samgönguráðuneytið gerði við bæjarfélagið undir lok síðasta árs hefur reynst vel. Ávinningur hins nýja samnings er slíkur að félagið getur unnið upp það tap sem orðið hafði á rekstri þess. Þessu til viðbótar þá var á kjörtímabilinu veittur veglegur stuðningur vegna Covid, viðbótarkostnaður bættur vegna tafa á afhendingu á nýjum Herjólfi, , ferðum fjölgað og þjónustan bætt.
Á kjörtímabilinu voru fargjöldin jöfnuð og er því sama gjald hvort sem Herjólfur siglir frá Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Kostnaður gat áður verið hár ef það þarf að sigla til og frá Þorlákshöfn, sérstaklega fyrir fjölskyldur.
Landeyjahöfn
Vel hefur gengið að hreinsa frá sand og halda Landeyjahöfn opinni fyrir Herjólf. Mikilvæg breyting var gerð að dýpkun Landeyjahafnar er ekki lengur bundin við ákveðinn tíma á ári, nú er hægt að dýpka eftir þörfum.
Endanlegri þróun Landeyjahafnar er ekki lokið og hef ég hug á því að þeirri vinnu ljúki sem fyrst og var það í samræmi við ályktun Alþingis. Óháðir aðilar voru fengnir til að rýna gögn Vegagerðarinnar. Vinna stendur nú yfir að safna betri gögnum með nýju skipi sem munu leiða til niðurstöðu um hverskonar aðgerðir eru nauðsynlegar til úrbóta á Landeyjahöfn. Þá var rafhleðslubúnaður settur upp.
Flug
Þess má geta að í vikunni átti ég fund með bæjarstjórn um reglulegt flug til Vestmannaeyja. Slíkt þarf að skoða með opnum hug og hef ég beðið Vegagerðina að greina þörfina og hvaða möguleika ríkið hefur til að grípa inn í ef um markaðsbrest er að ræða. Þá er ótalið yfirborðsviðhald á flugvelli Vestmanneyjaflugvallar og Loftbrúin þegar flugsins nýtur við.
Lokaorð
Samgöngur eru lífæði íbúa Vestmanneyja og hefur bærinn tekið miklum breytingum frá því að Landeyjahöfn var opnuð árið 2010. Fjöldi ferðamanna hefur stóraukist, Íslendingar jafnt sem erlendir ferðamenn. Eins og í öðrum almenningssamgöngum þá byggist þjónustan og traustið til hennar á tíðni ferða, fyrir íbúa og fyrirtæki. Halda þarf áfram að bæta þjónustuna sem þarf að skoða með opnum hug. Áframhaldandi rannsóknir á Landeyjahöfn standa nú yfir með það að markmiði að auka nýtingu hafnarinnar. Ég hef einnig sagt að spennandi er og sjálfsagt að kanna og fá óháðan aðila til að meta til hlítar hvort göng á milli lands og Eyja sé raunhæfur kostur þegar til lengri tíma er litið. Slík úttekt þarf að fara fram á næsta kjörtímabili.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu -og sveitarstjórnarráðherra.