Við leituðum eftir upplýsingum frá HSU um stöðu mála í faraldrinum en reglulega berast fréttir af fjölda smita víða um land. Davíð Egilsson yfirlæknir á HSU sendi okkur þetta svar. “Staðan er áfram almennt góð í Eyjum. Erum áfram undir 10 einstaklingum sem eru skráðir í einangrun. Það greindist smit hjá nemanda í grunnskólanum sem talið er að hafi borist gegnum landamærin. Fáir nemar eru útsettir, en gripið hefur verið til viðeigandi ráðstafana og skólastjórnendur unnið með smitrakningarteyminu. Einhver hópur barna er í smitgát og sóttkví, flest úr sama árgang. Ég er bjartsýnn á að þetta sé afmarkað smit en það kemur betur í ljós í sýnatökum við lok sóttkvíar og smitgátar.”