Fjórir íbúar og átta starfsmenn í það minnsta hafa greinst með covid-19 og óvíst var með prófanir á þremur aðilum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HSU. Sóttvarnarteymi Suðurlands mun koma strax í fyrramálið og skipta upp heimilinu. Frekari aðgerðir eru byrjaðar og halda áfram næstu daga en heimilið er nú alveg lokað og verður næstu daga.