Lið ÍBV og Stjörnunnar mætast í 8 liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í Vestmannaeyjum í kvöld. Ljóst er að mikið er undir í leik kvölsins því sigurvegarinn tryggir sér sæti í Final four helgi Coca Cola bikarsins. Allir iðkendur ÍBV fá frítt inn á leikinn sem hefst klukkan 18.00. Leikurinn verður einnig sýndur á youtube rás handboltans.

Þá fer karlalið ÍBV norður til Akureyrar með flugi og spilar við KA í Olísdeild karla. En leiknum var frestað í gær vegna samgöngutruflanna. Leikurinn verður í beinni útsendingu á KA-TV hefst hann kl. 17.30.