Enn situr ÍBV sem fastast á botni Bestu deildar karla eftir 4:3 tap á móti KA á Akureyri. Eyjamenn áttu fyrsta markið sem José Sito skoraði á sjöttu mínútu. Þá skoruðu Norðanmenn tvö mörk og komust yfir en á 21. mínútu var Sito aftur á ferðinni og jafnaði 2:2 úr víti. Það var svo í blálokin í fyrri hálfleik sem Halldór J.S. Þórðarson sem kom IBV yfir 2:3.

Seinni hálfleikurinn var svo KA sem skoraði tvö mörk og lokatölur 4:3 og ÍBV með fimm stig á botninum.