Vegagerðin vinnur við fræsingu afreinar til austurs á Heillisheiði við slaufu frá Þrengslavegi í dag. Vegurinn verður lokaður fyrir umferð til austurs á meðan, en reiknað er með að framkvæmdirnar standi yfir til kl. 20:00 í dag.

Þeir sem ætla að keyra frá Reykjavík til Landeyjahafnar í dag þurfa því að fara um Þrengslaveg í staðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu hjá Vegagerðinni.