Fornleifarannsókn við Miðgerði var til umræðu á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja. Undanfarnar vikur hefur staðið fyrir fornleifarannsókn í austurbæ á svæði þar sem fyrirhugað er að gera íbúðargötu að nafni Miðgerði. Þar stóðu áður tveir bæir og heimildir eru til um tilvist annars þeirra árið 1703. Skipulagsfulltrúi kynnti framgang verkefnisins.