Bréf stjórnar Herjólfs til bæjarráðs um hækkun gjaldskrár var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær. Þar kemur fram stjórnasamþykkt um hækkun gjaldskrár og óskað eftir samþykki bæjarráðs.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindis frá stjórn Herjólfs og felur formanni bæjarráðs að óska eftir fundi bæjarráðs með fulltrúum stjórnar Herjólfs.