Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti sjúkraflugi

0
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti sjúkraflugi
Mynd / Arnór Arnórsson
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út aðfaranótt fimmtudags til að sinna sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum. Ekki reyndist unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja vegna slæms skyggnis.
Þyrlusveitin flaug norður fyrir Elliðaey, austur fyrir sunnanverða Heimaey og þaðan til vesturs inn á Klaufina milli Stórhöfða og Litlahöfða þar sem þyrlan lenti á veginum.
Þar beið sjúkrabíll og var sjúkingurinn fluttur um borð í þyrluna og í kjölfarið komið undir læknishendur í Reykjavík.