Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Starfsmannafélag Vestmannaeyja-Stavey (eitt af aðildarfélögum BSRB) boðað til verkfalls hjá félagsmönnum þess í nokkrum stofnunum Vestmannaeyjabæjar.

Verkfallsboðunin á við um félagsmenn á bæjarskrifstofum Vestmannaeyja í Ráðhúsinu, leikskólanum Kirkjugerði, Þjónustumiðstöð, Íþróttamiðstöðinni og hjá Vestmannaeyjahöfn.

Vinnustöðvanir hófust í dag mánudaginn 5. júní og standa mislengi yfir eftir stofnunum..

Í tilviki Leikskólans Kirkjugerðis eru vinnustöðvanir boðaðar til 5. júlí nk. Sama á við um félagsfólk á bæjarskrifstofum í Ráðhúsinu.
Ótímabundin vinnustöðvun félagsmanna hefur verið boðuð í Íþróttamiðstöðinni.
Í tilviki Þjónustumiðstöðvarinnar eru vinnustöðvanir boðaðar til 17. júní nk. náist ekki samningar á tímabilinu
Hjá Vestmannaeyjahöfn er um að ræða einn dag á þessu tímabili, 8. júní nk.
Þetta kallar á skerta starfsemi umræddra stofnana, en verkföllin hafa ekki áhrif á ferðir Herjólfs milli lands og Eyja.

Í tilviki bæjarskrifstofanna verður afgreiðslan í Ráðhúsinu lokuð á meðan verkfallið stendur og önnur þjónusta skert.

Hægt verður að hringja í síma 488-2000, en búast má við að verkfallið hafi áhrif á símsvörun.

Hægt verður að hafa samband með tölvupósti á netfangið [email protected] og eins með tölvupósti til einstakra starfsmanna. Upplýsingar um netföng starfsfólks er að finna á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar (sjá: Starfsfólk Vestmannaeyjabæjar | Starfsfólk | Vestmannaeyjarbær).

Leikskólastjóri Kirkjugerðis mun senda foreldrum leikskólabarna á Kirkjugerði tilkynningu um þjónustu leikskólans meðan á verkfalli stendur.

Jóhann Jónsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar, mun svara fyrir um þjónustustig þar í verkfalli. Netfang Jóhanns er [email protected].

Hákon Helgi Bjarnason, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar (netfang: [email protected]) munu svara fyrir um þjónustu Íþróttamiðstöðvarinnar meðan á verkfallsaðgerðum stendur.

Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs (netfang: [email protected]) mun svara fyrir um starfsemi bæjarskrifstofanna í Ráðhúsinu meðan á verkfalli stendur.