Í dag tilkynnti handknattleiksdeild ÍBV að Ásdís Guðmundsdóttir, 25 ára línumaður að norðan, hefur gengið til liðs við félagið. Ásdís á 10 A-landsleiki að baki en síðast lék hún með sænska félaginu Skara HF.

„Hún er reynslumikill leikmaður og mikill hvalreki fyrir okkar félag. Við hlökkum til að sjá Ásdísi í hvítu treyjunni” segir í tilkynningu á Facebook-síðu deildarinnar.