Portúgalinn og hægri skyttan Daniel Vieira hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild ÍBV eins og fram kemur á Facebook síðu deildarinnar.

„Daniel kemur til okkar frá Avanca í Portúgal en þar hefur hann spilað síðustu tvö tímabil í portúgölsku úrvalsdeildinni og staðið sig mjög vel! Daniel er 22 ára, 194 cm á hæð og kraftmikil skytta. Við bindum miklar vonir við Daniel og hlökkum til að sjá hann á vellinum!” segir í færslu hjá ÍBV.