Hinn tvítugi Eyjamaður, Breki Óðinsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild ÍBV er fram kemur í tilkynningu hjá félaginu.

„Breki er sterkur hornamaður, fílhraustur og með risastórt ÍBV-hjarta og við erum einstaklega ánægð með að hann hafi framlengt samning sinn við Bandalagið!” segir í færslu á Facebook-síðu deildarinnar.