Eyjamærin Erika Ýr Ómarsdóttir hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild ÍBV, er fram kemur í tilkynningu hjá félaginu. Erika leggur stund á grunnskólakennarafræði við Háskóla Íslands og vinnur sem flugfreyja hjá Play í sumar.

„Eriku þekkja flestir og erum við mjög ánægð með að hún hafi ákveðið að taka slaginn á næsta tímabili með okkur” segir í færslu á Facebook-síðu deildarinnar.