Á morgunn föstudaginn 24. nóvember kl. 17:00 verða ljósin kveikt á jólatrénu á Stakkagerðistúni.

Lúðrasveit Vestmannaeyja tekur nokkur lög og Litlu lærisveinar undir stjórn Kitty Kovács syngja. Aníta Jóhannsdóttir formaður fræðsluráðs og Viðar prestur segja nokkur orð. Að lokum mun Eyjólfur Pétursson kveikja á trénu. Aldrei að vita nema að jólasveinarnir kíki við og heyrst hefur að Grins gangi laus í bænum. Vonum að hann fari nú ekki að mæta og valda veseni.