Í dag fer fram í Landakirkju Jólalaga-singalong sem hefst kl. 13. “Þá ætlum við að koma saman til að syngja jólasálma og jólalög og gleðjast á góðri söngstund,” segir í tilkynningu frá Landakirkju. Kór Landakirkju, Kvennakór Vestmannaeyja og Karlakór Vestmannaeyja munu styðja við sönginn og flytja einnig verk einslega.
Þá hefur heyrst að Grinch muni mæta í sunnudagaskólann í dag klukkan 11. Vonandi mun hann hegða sér sómasamlega því þetta er síðasti sunnudagaskólinn fyrir jól.