Gamli Þór seldur til Súðavíkur

Gamli Thor TMS IMG 2228

Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur selt Þór hinn eldri, en félagið fékk nýtt björgunarskip afhent haustið 2022. „Nú er staðan sú að björgunarsveitin Kofri í Súðavík hefur staðfest kaup á skipinu og er varðskipið Freyja væntanlegt til Eyja á föstudag og ætlar vonandi að flytja hann fyrir okkur vestur.“ segir Arnór Arnórsson, formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja í samtali […]

Bikarleiknum frestað vegna kærumáls

Ibv Kari 23 OPF DSC 1547

Mótanefnd Handknattleikssambands Íslands hefur frestað leik ÍBV og FH í Powerade bikarkeppni HSÍ, þar sem ekki er kominn niðurstaða í kærumáli Hauka og ÍBV. Fer leikurinn því í ótímabundna frestun, segir í tilkynningu frá sambandinu í dag. Haukar sigruðu leikinn en ÍBV kærði framkvæmd leiksins sem háður var að Ásvöllum. Dómari í málinu dæmdi ÍBV […]

65 ár frá því fyrsti Herjólfur kom til Eyja

Sj 38723 Herjlfur I Kemur Nr A4 18 12121959 Breytt Reduced

Í dag eru 65 ár síðan Herjólfur I kom fyrst til Vestmannaeyja. Það var nánar tiltekið klukkan 14.00 þann 12. desember 1959 sem fyrsti Herjólfur lagðist að bryggju í Eyjum. Fyrsti Herjólfur gekk daglega á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Ferjan sigli auk þess hálfsmánaðarlega til Hornafjarðar og á sumrin hin síðari ár til Þorlákshafnar einu […]

Grettir Jóhannesson nýsköpunarstjóri uppsjávariðnaðarins

Nýsköpun í uppsjávariðnaði fær nú sérstaka athygli með tilkomu Grettis Jóhannessonar, sem tók nýverið við nýju starfi hjá Félagi uppsjávariðnaðarins og Þekkingarsetri Vestmannaeyja. „Ég hef aðstöðu hjá Þekkingarsetri Vestmannaeyja, þar sem mér hefur verið tekið afar vel,“ segir Grettir, sem hefur hafið vinnu við að skoða lista af hugmyndum með mögulegum tækifærum. „Markmiðið er að færa […]

Dagskrá um sjóslysið við Eiðið 16. desember 1924

Sjóslys 16des1924 Teikning 10des2024

Mánudaginn 16. desember kl. 16 verður boðið upp á dagskrá í Sagnheimum til minningar um hið hörmulega  sjóslys við Vestmannaeyjar, fyrir réttum eitt hundrað árum, er átta menn drukknuðu við fjöruborðið norðan við Eiðið. Helgi Bernódusson flytur erindi um slysið og þá sem drukknuðu og myndir verða sýndar um uppsetningu minningarsteins sem reistur var nálægt þeim […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.