ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins

Dregið var í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag. Kvennalið ÍBV var í pottinum og þurfa þær að fara í langt ferðalag því þær drógust gegn Tindastól, á Sauðárkróki. 16-liða úrslitin verða leikin föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí. Tíu lið í 16- liða úrslitunum eru úr Bestu deildinni, […]

Er Herjólfsferð örugg ferð?

Nú er aldeilis ástand í samgöngumálum okkar Eyjamanna. Reynt hefur verið að ná eyrum ráðamanna án nokkurs árangurs. Hvar eru þingmenn meirihlutans á Suðurlandi? Halló er einhver heima? Ásthildur Lóa í Flokki fólksins?  Víðir Reynis í Samfylkingunni? og Sandra Sigurðardóttir í Viðreisn? Í gær var Herjólfur að sigla í 3,5 m ölduhæð á einni skrúfu og gekk á milli 6 og 7 mílum og kom til Eyja rúmlega tvö í nótt. Meira að segja Áflsnesið fer aðeins hraðar. Það er alls ekki  við áhöfn Herjólfs að sakast sem sýnir alltaf elju og dugnað í sínum störfum. Nú er hækkandi alda og hvað þá? Því spyr maður, hvar er gamli Herjólfur […]

Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Aflabrögðin hafa verið slík að þurft hefur að hægja á skipunum þannig að þau hafa legið lengur í höfn en venja er til að loknum löndunum, Bergey landaði fullfermi í Grindavík á föstudag og var Jón Valgeirsson skipstjóri ánægður með veiðiferðina. „Við vorum […]

Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar

Samgöngur til Vestmannaeyja eru algerlega óásættanlegar í dag og hafa verið það nú í langan tíma. Það hefur legið fyrir lengi að Landeyjahöfn þarf að klára og verða tillögur að breytingum á höfninni kynntar á næstu vikum. Það skiptir ÖLLU máli að ríkistjórnin ákveði að setja fjármagn í þær breytingar strax. Staðan er þessi: -Við […]

Skyldumæting í höllina í dag!

ÍBV stendur fyrir samheldni, seiglu og stolti sem býr í hjarta okkar Eyjamanna.  Í dag kl. 18 spilar kvennalið ÍBV í handbolta oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar gegn Haukum. Hér er ekki bara um venjulegan leik að ræða, þetta er slagur um að komast áfram í úrslitin. Þess vegna þurfum við öll að mæta og styðja liðið. […]

Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn

Búið er að setja af stað undirskriftarlista vegna stöðunnar í Landeyjahöfn þar sem krafist er tafarlausra úrbóta. Hægt er að skrifa undir hér Ófremdarástandið sem nú ríkir í Landeyjahöfn er orðið alvarlegt áhyggjuefni fyrir bæði íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Orsökin er ónógt dýpi í höfninni, sem hefur leitt til þess að Herjólfur getur ekki […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.