Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Aflabrögðin hafa verið slík að þurft hefur að hægja á skipunum þannig að þau hafa legið lengur í höfn en venja er til að loknum löndunum,

Bergey landaði fullfermi í Grindavík á föstudag og var Jón Valgeirsson skipstjóri ánægður með veiðiferðina. „Við vorum að veiðum á Selvogsbankahaus í blíðuveðri og það var sannkölluð afbragðsveiði. Þarna fékkst langmest af ýsu en síðan var dálítið af þorski og ufsa með í aflanum. Veiðin var jöfn og fengust yfirleitt um 10 tonn í holi. Það eru mörg skip í ýsunni á þessum slóðum,” sagði Jón í samtali við vef Síldarvinnslunnar.

Vestmannaey landaði fullfermi í Grindavík á laugardag að afloknum stuttum túr. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri sagði að ýsugengdin væri eftirtektarverð

„Þessi túr var stuttur. Við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það var byrjað á Selvogsbanka og þar fékkst blandaður afli en síðan færðum við okkur á Tána til þess að ná í ýsu. Það var sannkölluð mokveiði og satt að segja vekur ýsugengdin mikla athygli. Það virðist vera mjög gott ástand á ýsunni og hana er að finna í miklu magni á stóru svæði,” sagði Birgir Þór.

Bergey hélt til veiða á ný í gærkvöldi og verður lögð áhersla á karfaveiði að þessu sinni. Vestmannaey mun væntanlega halda til veiða á ný á föstudag.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.