ÍBV stendur fyrir samheldni, seiglu og stolti sem býr í hjarta okkar Eyjamanna. Í dag kl. 18 spilar kvennalið ÍBV í handbolta oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar gegn Haukum. Hér er ekki bara um venjulegan leik að ræða, þetta er slagur um að komast áfram í úrslitin.
Þess vegna þurfum við öll að mæta og styðja liðið.
ÍBV er meira en íþróttafélag. Það er hjartað í bænum og þegar liðin okkar keppa, þá keppir samfélagið allt í sama liði.
Það er einmitt þessi samheldni sem hefur mótað Vestmannaeyjar í gegnum tíðina. Við vitum hvað það þýðir að takast á við mótlæti og standa sterk saman. Nú þegar Landeyjahöfn er lokuð vegna sandburðar og daglegt líf verður aðeins flóknara, þá er enn mikilvægara að finna sameiginlegan kraft og þar kemur ÍBV sterkt inn.
Stelpurnar okkar hafa sýnt ótrúlega baráttu, dugnað og karakter í vetur. Þær hafa unnið fyrir þessu tækifæri og nú þurfa þær á okkar stuðningi að halda.
Við vitum hvað heimavöllurinn getur gert. Við vitum hvernig stemningin getur snúið leikjum við. Þess vegna er ákallið einfalt : Mætum og fyllum íþróttahúsið, látum í okkur heyra og sýnum stelpunum að þær eru ekki einar. Látum þær finna að við stöndum með þeim í baráttunni.
Það skiptir máli að mæta í höllina kl. 18 í kvöld. Ekki bara fyrir handboltann, heldur fyrir ÍBV, fyrir Vestmannaeyjar og fyrir okkur sjálf.
Það skiptir máli að stelpurnar finni fyrir því að við erum með þeim í þesssu og stöndum þétt á bak við þær því reynslan sýnir og sannar að við erum alltaf Sterkari saman.
Eyþór Harðarson, stuðningsmaður ÍBV og oddviti framboðs Sjálfstæðisflokksins.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.