Er Herjólfsferð örugg ferð?
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson
Gudni Hjoll An Bakgr

Aðsend grein

Guðni Hjörleifsson

Nú er aldeilis ástand í samgöngumálum okkar Eyjamanna.

Reynt hefur verið að ná eyrum ráðamanna án nokkurs árangurs.

Hvar eru þingmenn meirihlutans á Suðurlandi?

Halló er einhver heima? Ásthildur Lóa í Flokki fólksins?  Víðir Reynis í Samfylkingunni?

og Sandra Sigurðardóttir í Viðreisn?

Í gær var Herjólfur að sigla í 3,5 m ölduhæð á einni skrúfu og gekk á milli 6 og 7 mílum og kom til Eyja rúmlega tvö í nótt. Meira að segja Áflsnesið fer aðeins hraðar. Það er alls ekki  við áhöfn Herjólfs að sakast sem sýnir alltaf elju og dugnað í sínum störfum.

Nú er hækkandi alda og hvað þá? Því spyr maður, hvar er gamli Herjólfur og af hverju er hann ekki kominn á ferðina á móti hinum? Það er greinilegt að landsbyggðin er aukaatriði hjá þessari ríkisstjórn, spyrjið bara Seyðfirðinga og Grindvíkinga. Það gengur greinlega fyrir að gæða sér á pizzum og klára ESB, annað getur átt sig!

Ég skora á fulltrúa Eyjalistans að beita sínum áhrifum gagnvart sínu fólki í ríkisstjórn. Eyjamenn vilja svör og lausnir! Það er óboðlegt að halda Eyjamönnum áfram í gíslingu!

Þetta er algjör falleinkunn á þá sem bera ábyrgð. Hvers vegna hefur bæjarráð eða bæjarstjórn ekki boðað til neyðarfundar?

 

Guðni Hjörleifsson,

Höfundur skipar 5. sæti á lista Miðflokksins í Vestmannaeyjum.

 

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.