Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar

Aðsend grein

Íris Róbertsdóttir

Samgöngur til Vestmannaeyja eru algerlega óásættanlegar í dag og hafa verið það nú í langan tíma.
Það hefur legið fyrir lengi að Landeyjahöfn þarf að klára og verða tillögur að breytingum á höfninni kynntar á næstu vikum. Það skiptir ÖLLU máli að ríkistjórnin ákveði að setja fjármagn í þær breytingar strax.

Staðan er þessi:

-Við erum með bilað skip
-Við erum með lokaða Landeyjahöfn
-Við erum með mjög skertar flugsamgöngur sem eiga, ofan á allt annað, að falla niður í lok vikunnar

En hvað er hægt að gera núna?
Ég átti samtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í morgun og verða samgöngur okkar ræddar á ríkistjórnarfundi í dag. Ég lagði áherslu á það sem hægt er að gera strax .

Það er hægt að fjölga flugferðum strax í dag. Lágmark tvær ferðir á dag á meðan staðan er eins og hún er. Beiðni um fjölgun ferða hefur legið inni hjá innviðaráðneytinu síðan 15. apríl.

Herjólfur III þarf að koma til Eyja strax og inn í áætlun með Herjólfi IV. Ég hef óskað eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um það hvenær skipið verður klárt og fæ upplýsingar um stöðuna síðar í dag. Skipið á alltaf að vera klárt svo að hægt sé að nýta það ef bilun verður í Herjólfi IV eins og núna .
Þetta ástand getur ekki gengið lengur!

Það er frábært að sjá og finna samheldnina og samstöðuna í samfélaginu hér í Eyjum. Margir hafa tjáð sig um stöðuna og ýta á ráðmenn um lausnir. Ein af þeim er Þórunn Pálsdóttir sem hefur skrifað mjög góða pistla um stöðuna. Við ætlum ekki að láta þetta buga okkur en nú er löngu löngu komið nóg. Aðgerða er þörf strax í dag.
Ég hvet alla til að skrifa undir þennan undirskriftarlista sem hún Eyrún, íbúi hér í Eyjum, setti af stað í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.