Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA

ÍBV og ÍA skildu jöfn, 2-2, í fyrsta leik áttundu umferðar Bestu deildar karla, á Akranesi í kvöld.  Nokkuð var um færi og ágætis upphlaup í fyrri hálfleik þó svo að mörkin hafi ekki komið. Skagamenn voru mjög nálægt því að ná forystunni á 39. mínútu en Róbert Elís Hlynsson bjargaði á línu fyrir Eyjamenn. […]

Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun

Óvissa ríkir um siglingar Herjólfs um hvítasunnuhelgina eftir að nýjar veður- og ölduspár benda til þess að aðstæður við Landeyjahöfn geti orðið erfiðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Samkvæmt tilkynningunni eru allar ferðir enn á áætlun að svo stöddu. Ef gera þarf breytingar verði hins vegar tilkynnt um þær um leið og […]

Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV

Petar Jokanovic, markvörður ÍBV í handbolta, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og gildir samningurinn til ársins 2028. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. Petar er 35 ára og kemur frá Bosníu. Hann kom fyrst til ÍBV árið 2019 og hefur leikið með liðinu síðan. Í tilkynningu ÍBV segir, ,,Petar hefur […]

Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum

Samtök atvinnulífsins halda opinn morgunverðarfund í Akóges-salnum, miðvikudaginn 27. maí, klukkan 8.30. Hringferð SA, sem hefur yfirskriftina Rjúfum vítahringinn, stendur yfir næstu þrjár vikur og verður farið vítt og breitt um landið og efnt til funda við fyrirtæki, sveitarfélög og almenning um stöðu íslensks efnahagslífs og leiðir til aukins stöðugleika. Á fundinum verður rætt um […]

Þakklæti efst í huga

Úrslit bæjarstjórnarkosninganna sl. laugardag voru mjög skýr og afgerandi. Við, sjálfstæðismenn, náðum frábærum árangri,  fengum 55,7% atkvæða og hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Við erum gríðarlega stolt með þessa niðurstöðu en jafnframt þakklát kjósendum í Eyjum fyrir þeirra ómetanlega stuðning við framboð okkar. Glæsileg niðurstaða Sigur okkar í þessum kosningum er glæsilegur, því það er ekki […]

Kvennakórinn heldur vortónleika

Kvennakór Vestmannaeyja heldur vortónleika í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld og hefjast þeir klukkan 20:00. Kórinn flytur fjölbreytt lög í léttum og vorlegum anda undir stjórn Kitty Kovács, sem jafnframt sér um undirleik. Kvennakór Vestmannaeyja hefur verið virkur þátttakandi í tónlistar- og menningarlífi samfélagsins og kemur reglulega fram við ýmis tilefni og eru vortónleikarnir orðinn hefð. […]

Mikilvæg stig í húfi þegar ÍBV mætir ÍA

Í dag hefst áttunda umferð Bestu deildar karla þegar ÍBV sækir ÍA heim á ELKEM-völlinn á Akranesi. Fyrir Eyjamenn er um afar mikilvægan leik að ræða eftir erfiða byrjun á tímabilinu þar sem fyrsti sigur liðsins lætur enn bíða eftir sér. ÍBV situr á botni deildarinnar með eitt stig eftir fyrstu sjö leikina. Liðið hefur […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.