Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Mynd/ÍBV handbolti

Petar Jokanovic, markvörður ÍBV í handbolta, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og gildir samningurinn til ársins 2028. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Petar er 35 ára og kemur frá Bosníu. Hann kom fyrst til ÍBV árið 2019 og hefur leikið með liðinu síðan. Í tilkynningu ÍBV segir, ,,Petar hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir liðið með sinni miklu reynslu, öryggi og leiðtogahæfileikum fyrir okkar yngri markmenn. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og stór þáttur í þeim árangri sem náðst hefur”.

,,Samhliða því hefur Petar verið að þjálfa yngri flokka félagsins þar sem hann hefur staðið sig virkilega vel. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að hafa reynslumikinn einstakling eins og Petar í starfi með yngri iðkendum og við erum mjög ánægð að hann muni koma til að halda áfram því mikilvæga hlutverki hjá félaginu”.

Að lokum segir ,,Það er því mikið gleðiefni að Petar verði áfram í hvítu og svörtu næstu árin”.

 

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Kristín skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Opinn fundur um þjóðaratkvæðagreiðsluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.