Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Úr leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli fyrr í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og ÍA skildu jöfn, 2-2, í fyrsta leik áttundu umferðar Bestu deildar karla, á Akranesi í kvöld. 

Nokkuð var um færi og ágætis upphlaup í fyrri hálfleik þó svo að mörkin hafi ekki komið. Skagamenn voru mjög nálægt því að ná forystunni á 39. mínútu en Róbert Elís Hlynsson bjargaði á línu fyrir Eyjamenn. Liam Daði Jeffs fékk besta færi Eyjamanna þegar komið var í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann slapp þá einn í gegn og náði skotinu úr þröngu færi en boltinn rétt framhjá. Markalaust í hálfleik.

Skagamenn komust yfir strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks þegar Gísli Laxdal Unnarsson skoraði glæsilegt mark með skoti fyrir utan teig. Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Gísli Eyjólfsson með góðu skoti á nærstöngina og kom Skagamönnum í 2-0. 

Halldór Jón kom með kraft inn

Eyjamenn neituðu að gefast upp og minnkaði varamaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson muninn á 67. mínútu leiksins. Eyjamenn fengu þá aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt fyrir utan teig, sem Vicente Valor tók. Hann setti boltann undir vegg ÍA en Jón Sölvi Símonarson, markvörður Skagamanna, varði boltann út í teiginn. Halldór Jón var fyrstur til að átta sig og setti boltann örugglega í markið.

Róbert Elís Hlynsson jafnaði leikinn fyrir ÍBV tíu mínútum síðar þegar Arnar Breki Gunnarsson átti sendingu inn á teig Skagamanna, Halldór Jón potaði boltanum áfram á Róbert Elís sem stýrði boltanum í netið af stuttu færi. Hvorugu liðinu tókst að knýja fram sigurmark á lokamínútum leiksins og var því niðurstaðan 2-2. 

Eftir átta leiki er ÍBV í neðsta sæti Bestu deildarinnar með tvö stig en Skagamenn eru í sjöunda sæti með níu stig. Áttunda umferðin klárast á morgun, föstudag, með fimm leikjum. Leikina má sjá hér að neðan:

18:00 Keflavík – Þór

18:00 KA – Valur

19:15 Víkingur R. – FH

19:15 Stjarnan – Fram

19:15 Breiðablik – KR

 

 

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.