Úrslit bæjarstjórnarkosninganna sl. laugardag voru mjög skýr og afgerandi. Við, sjálfstæðismenn, náðum frábærum árangri, fengum 55,7% atkvæða og hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Við erum gríðarlega stolt með þessa niðurstöðu en jafnframt þakklát kjósendum í Eyjum fyrir þeirra ómetanlega stuðning við framboð okkar.
Sigur okkar í þessum kosningum er glæsilegur, því það er ekki víða sem framboð fá svo hátt hlutfall atkvæða í kosningum. Þar sem fleiri en tvö framboð eru í boði, eins og raunin var hér í Eyjum, er það enn fátíðara. Í nýafstöðnum kosningum geta einungis sjálfstæðismenn í Garðabæ státað af betri niðurstöðu en við – í þeim sveitarfélögum þar sem þrjú framboð eða fleiri voru í boði. Kosningaúrslitin hér eru því einstaklega glæsileg fyrir sjálfstæðismenn í Eyjum.
Þessi árangur er samspil margra þátta. Við frambjóðendur lögðum á okkur mikla vinnu, eins og kosningabarátta krefst frá þeim sem bjóða sig fram. Stuðningsmenn okkar skiptu þó sköpum, því þeirra eljusemi og vinna með okkur var ómetanleg. Einstaklega góð mæting á alla viðburði, sem við efndum til, veitti okkur kraft og við fundum fyrir miklum meðbyr sem sýndi sig svo í niðurstöðum kosninganna. Við erum mjög þakklát fyrir þann mikla stuðning sem við fengum og getum í hreinskilni sagt við okkar stuðningsmenn að þessi sigur sé þeirra.
Við tökum niðurstöðunni með auðmýkt og ábyrgð. Það traust sem okkur var sýnt með þessari afgerandi niðurstöðu, er okkur hvatning til að vinna af enn meiri krafti að öflugum framgangi allra þeirra mála sem mikilvæg eru fyrir íbúa Vestmannaeyja.
Mörg verkefni bíða okkar og við munum af fremsta megni reyna að standa undir því trausti sem kjósendur sýndu okkur. Ég lofaði fyrir kosningar að við myndum leggja okkur öll fram, fengjum við traust kjósenda til að stýra bæjarfélaginu. Við ætlum að standa við það loforð.
Hjartans þakkir til allra sem studdu okkur. Þetta er sameiginlegur sigur okkar allra og við ætlum að vinna með öllum Vestmannaeyingum og fyrir Vestmannaeyjar að koma í höfn sem flestum málum sem er til hagsbóta fyrir samfélagið hér. Við ætlum að gera þetta saman, því við erum alltaf ”Sterkari saman”.
Takk fyrir okkur.
F.h. Frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
Eyþór Harðarson, oddviti D-lista.