Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Herjólfur varar við erfiðum aðstæðum um hvítasunnuhelgina
Veður og alda gætu sett strik í reikninginn hjá Herjólfi um hvítasunnuhelgina. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Óvissa ríkir um siglingar Herjólfs um hvítasunnuhelgina eftir að nýjar veður- og ölduspár benda til þess að aðstæður við Landeyjahöfn geti orðið erfiðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Samkvæmt tilkynningunni eru allar ferðir enn á áætlun að svo stöddu. Ef gera þarf breytingar verði hins vegar tilkynnt um þær um leið og ákvörðun liggur fyrir.

Fram kemur að vindur hafi nú meiri áhrif á siglingagetu Herjólfs þar sem skipið siglir á annarri skrúfunni eftir bilun í rafmótor. Af þeim sökum gæti þurft að fella niður ferðir með skömmum fyrirvara og eru farþegar hvattir til að ferðast fyrr frekar en síðar ef kostur er.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að forsvarsmenn Herjólfs hafi óskað eftir aðstoð frá Baldri við siglingar milli lands og Eyja um hvítasunnuhelgina, en ekki hafi reynst unnt að verða við þeirri beiðni.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.