Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.

Samtök atvinnulífsins halda opinn morgunverðarfund í Akóges-salnum, miðvikudaginn 27. maí, klukkan 8.30. Hringferð SA, sem hefur yfirskriftina Rjúfum vítahringinn, stendur yfir næstu þrjár vikur og verður farið vítt og breitt um landið og efnt til funda við fyrirtæki, sveitarfélög og almenning um stöðu íslensks efnahagslífs og leiðir til aukins stöðugleika.

Á fundinum verður rætt um áhrif verðbólgu og hárra vaxta á heimili og fyrirtæki, samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og mikilvægi þess að skapa skilyrði fyrir lægri vexti, meiri fjárfestingu og bætt lífskjör.

„Það er mikilvægt að við komum saman og eigum hreinskilið samtal um stöðu efnahagsmála og verkefnin fram undan. Verðbólga og óstöðugleiki hafa áhrif á allt samfélagið og þess vegna skiptir máli að hlusta á ólíkar raddir og ræða hvernig við getum sameinast um leiðir til að rjúfa vítahring verðbólgu,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Í pallborði á fundinum í Akóges-salnum eru Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu, Íris Sif Hermannsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Eyjatours, Kolbeinn Agnarsson, formaður Jötuns sjómannafélags og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.

Húsið verður opnað kl. 8.15 með léttum veitingum, segir í tilkynningu frá SA.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.