240 ára afmæli Landakirkju
Sjálfboðaliðar við störf Mynd: aðsend

Á þessu ári eru liðin 240 ár frá því byggingu Landakirkju var lokið. Kirkjan var byggð 1774-1780 en þá voru íbúar í Eyjum innan við 300 talsins. Tvær meiriháttar breytingar hafa verðið gerðar á kirkjunni á þessum 240 árum.  Í tíð von Kohls sýslumannas (1853-1860)  var byggður tréturn á kirkjuna predikunarstóll sem stóð sunnanmegin var fluttur yfir altarið og settar voru svalir yfir vesturenda og fram með langveggjum.

Síðari stóra breytingin var bygging nýrrar  myndarlegrar forkirkju úr steini   1955-1959 sem er í stíl við sjálfa kirkjuna.   Þessu til viðbótar var byggt safnaðarheimili  við kirkjuna 1988-1990  sem síðar var stækkað verulega.

Sóknarnefnd ákvað fyrr á þessu ári að minnast 240 ára afmælisins sunnudaginn 30. ágúst nk. og verður síðar gerð nánari grein fyrir dagskránni.

Í tilefni afmælisins var ákveðið að byggja nýjan vegg á vesturhluta lóðar í stað eldri  sem er mjög illa farinn. Þá var ákveðið að fara í múrviðgerðir á  austur og suðurveggjum  lóðarinnar. Ljóst var að afla þurfti styrkja og sjálfboðaliða til að hægt væri að fara í þessi verk. Starfsfólk krikjunnar hefur að undanförnu unnið við múrviðgerður á veggjum.  Í gær kom vaskur hópur sjálfboðaðliða úr hópi sóknarnefndar og starfsfólks kirkjunnar og byrjaði að mála austur og suðurvegg og verður því verki haldið áfram í dag.. Fyrirtækin Málning hf. og Miðstöðin hf. – gáfu alla málningu á veggina.  Þá hafa nokkur fyrirtæki, stofnanir og verktakinn gert mögulegt að  hefja framkvæmdir við vesturvegg sem liggur að Vallargötu. Þessum framkvæmdum verður lokið tímalega áður en haldið verður upp á 240 ára afmæli Landakirku 30. ágúst næst komandi.

Nýjustu fréttir

Erlingur og Elmar með mikilvæga sigra í þýsku B-deildinni
Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Jólasveinarnir fara í keilu á aðfangadag og dansa í kringum pálmatré
Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.