38 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs

Alls sóttu 38 um stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs. Stjórn vinnur nú við að fara yfir umsóknir og meta og mun það taka einhvern tíma. Það má þó búast við frekari fréttum í vikunni samkvæmt svari frá Arnari Péturssyni stjórnarformanni Herjólfs OHF til Eyjafrétta.

Samkvæmt upplýsingalögum er stjórn heimilt að birta lista yfir umsækjendur en ekki skylt að gera það.

Eyjafréttir hafa áður greint frá því að Grímur Gíslason fyrrverandi stjórnarformaður Herjólfs ohf sé meðal umsækjenda. Þá sagði Magnús Bragason eigandi Hótel Vestmannaeyja frá því á facebook síðu sinni að hann sé meðal umsækjanda. Eyjafréttir mun fylgja málinu eftir.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.