39 tillögur viðbragðsteymis að umbótum í bráðaþjónustu á landsvísu
13. janúar, 2023

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu í ágúst síðastliðnum. Hlutverk þess var að setja fram tímasetta áætlun til næstu ára um breytingar og umbætur í bráðaþjónustu um allt land. Teymið hefur nú skilað ráðherra umfjöllun sinni um umbætur með 39 tillögum um aðgerðir til skemmri og lengri tíma.

„Þetta eru skýrar og vel rökstuddar tillögur um markvissar aðgerðir til að efla og bæta bráðaþjónustu um allt land. Þannig aukum við öryggi sjúklinga, styðjum markmiðið um að veita rétta þjónustu á réttum stað og jöfnum álag á stofnanir heilbrigðiskerfisins“ segir Willum Þór. Hann segir afar verðmætt að í viðbragðsteyminu hafi unnið saman fulltrúar allra aðila sem koma að bráðaþjónustu og skilað sameiginlegri niðurstöðu og tillögum.

Jón Magnús Kristjánsson sérfræðingur í bráðalækningum leiddi vinnu teymisins og segir samstöðuna í hópnum hafa mikla þýðingu: „Við erum sannfærð um að með því að hrinda þessum tillögum í framkvæmd munum við sjá miklar breytingar á næstu misserum með öruggari, skilvirkari og betri bráðaþjónustu.

Í samræmi við skipunarbréf var megináhersla lögð á móttöku bráðatilvika alls staðar í heilbrigðiskerfinu. Teyminu var skipt í vinnuhópa sem hver um sig fjallaði um og gerði tillögur til umbóta sem snúa að eftirtöldum þáttum:

  • Kortlagningu, verkaskiptingu og stigun bráðaþjónustu á landsvísu
  • Faglegum stuðningi við sjúkraflutninga á landsvísu og móttöku bráðatilvika í dreifðari byggðum
  • Endurskoðun á bráðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu utan dagvinnutíma
  • Skilgreiningu lykilmarkmiða og mælikvarða fyrir þjónustu á bráðamóttökum
  • Aukinni bráðaþjónustu við einstaklinga í heimahúsum eða á hjúkrunarheimilum og mat á áhrifum þess á aðsókn og álag á bráðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Helstu niðurstöður viðbragðsteymisins 

Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu telur margvísleg sóknarfæri til að efla og bæta bráðaþjónustu á landsvísu. Í megindráttum snúa tillögur viðbragðsteymisins að því að efla og samræma bráðaþjónustu um allt land, auka samvinnu milli stofnana, skilgreina viðmið um gæði þjónustunnar, styðja við menntun og þjálfun viðbragðsaðila, innleiða skilgreiningar á viðbragðstíma sjúkraflutninga og fleira.

Stofnuð verði bráðafjarheilbrigðismiðstöð: Viðbragðsteymið leggur ríka áherslu á að stórefla faglegan stuðning við alla þá viðbragðsaðila sem sinna bráðaþjónustu um allt land, meðal annars við sjúkraflutninga og ekki síður heilbrigðisstarfsfólk á starfsstöðvum heilbrigðisstofnana í dreifðari byggðum.

Lagt er til miðstöðin sinni 1) læknisfræðilegri stjórnun og ráðgjöf fyrir sjúkraflutninga, 2) bráða-læknisráðgjöf fyrir heilsugæslu í dreifbýli, 3) fjarheilbrigðisþjónustu fyrir sjófarendur, vettvangsliða og björgunarsveitir, auk 4) faglegrar ráðgjafar við Neyðarlínu, meðal annars til 5) ákvörðunar um notkun sjúkraflugs og þyrlu. Verkefnið á sér fyrirmyndir erlendis. Ýtarlega er fjallað um þetta verkefni í meðfylgjandi skýrslu viðbragðsteymisins.

Tækjakaup til bráðaþjónustu og vegvísun í heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðherra hefur þegar ráðstafað tæpum 330 milljónum króna til að bæta tækjabúnað vegna bráðaþjónustu á heilbrigðisstofnunum og heilsugæslustöðvum um allt land. Ákvörðunin byggist á tillögum viðbragðsteymisins um aðgerðir til að jafna aðgengi að bráðaþjónustu um allt land. Einnig er hafin vinna starfshóps um vegvísun í heilbrigðisþjónustu sem ráðherra skipaði í samræmi við tillögur teymisins.  Markmiðið er að tryggja almenningi greiðar og aðgengilegar upplýsingar um hvert leita skuli eftir heilbrigðisþjónustu í samræmi við þörf og aðstæður hvers og eins hverju sinni. Horft er til þess að með samræmdri upplýsingagjöf og aukinni samvinnu þjónustuveitenda megi bæta þjónustu við sjúklinga og dreifa álagi á heilbrigðiskerfið.

Undirbúningur er hafinn að framkvæmd fleiri tillagna viðbragðshópsins og verður greint frá því eftir því sem fram vindur.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

Nýjar fréttir

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.