4-1 stjörnusigur í Breiðholtinu - myndir

Karlalið íBV í fótbolta vann Leikni R. í skemmtilegum leik í Breiðholtinu í dag, um var að ræða fallbaráttuleik í Bestu deildinni þar sem liðin sátu í 10. og 11. sæti fyrir leik.

Síðasti leikur þessara liða fór fram í Eyjum í 3. umferð þar sem liðin skildu jöfn 1-1, en bæði mörkin voru skoruð af liðsmönnum ÍBV, þar sem annað markið reyndist vera sjálfsmark.

Það var annað uppi á teningnum í dag, ÍBV liðið virðist komið á góða siglingu og þetta er flott frammistaða og góð eftirfylgni eftir síðasta sigurleik, sem var einmitt fyrsti sigurleikur ÍBV á leiktíðinni.

Leikurinn í dag fór 4- 1 fyrir okkar mönnum. Mörk ÍBV skoruðu:
Alex Freyr Hilmarsson (29. mín.),
Atli Hrafn Andrason (45. mín.),
Halldór Jón Sigurður Þórðarson (53. mín.) og
Eiður Aron Sigurbjörnsson (65. mín – víti).

Mark Leiknis skoraði Birgir Baldvinsson (46. mín.).

Verðskuldaður sigur hjá okkar mönnum!
Næsti leikur ÍBV er gegn Keflavík, laugardaginn 30. júlí kl. 14:00 og fer hann fram á Hásteinsvelli.

 

Ofsakátur Hemmi í leikslok.
Til gamans má nefna að Sindri Björnsson hjá Leikni á ættir til Vestmannaeyja.
Lið ÍBV fagnar og þakkar fyrir sig í lok leiks.
Heimir Hallgrímsson er á leikskýrslu hjá ÍBV og deilir úr sínum viskubrunni.

Allar myndir eru frá Hafliða Breiðfjörð hjá Fótbolti.net

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.