Skólaslit vorannar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fóru fram í dag, föstudaginn 29. maí, þar sem 45 nemendur voru útskrifaðir af sex mismunandi brautum. Athöfnin hófst klukkan 13.00 og fór fram að viðstöddum útskriftarnemum, fjölskyldum, starfsfólki skólans og öðrum gestum.
Nemendur útskrifuðust af stúdentsbrautum, húsasmiðabraut, sjúkraliðabraut, iðnmeistaranámi, starfsbraut og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Í ræðu skólameistara kom fram að útskriftin væri ekki aðeins staðfesting á loknum áföngum og prófum, heldur einnig á þrautseigju nemenda.
Í yfirliti yfir vorönnina kom fram að önnin hefði verið viðburðarík. Meðal þess sem bar hæst var heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í skólann, góður árangur nemenda í nýsköpun, myndlistarsýning nemenda og öflugt félagslíf. Þá var sérstaklega nefnt að skólinn væri orðinn þétt setinn og að mikill áhugi væri á námi við FÍV.
Nokkrir nemendur hlutu viðurkenningar við athöfnina. Hrafnhildur Hallgrímsdóttir hlaut meðal annars Menntaverðlaun Háskóla Íslands, Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík og viðurkenningu skólans fyrir mjög góðan heildarárangur í námi, 9,0. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Erna Sólveig Davíðsdóttir hlutu einnig viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur, báðar með 8,6.
Skólameistari minnti útskriftarnema á mikilvægi þess að taka þátt í samfélaginu, hlusta, spyrja góðra spurninga og sjá fólkið í kringum sig. Þá kom fram að útskriftarárgangurinn frá 1986, sem nú fagnar 40 árum frá útskrift, hefði sent útskriftarnemendum dagsins hlýjar kveðjur.
Að lokinni athöfn var stillt upp til myndatöku.
Eftirtaldir nemendur voru útskrifaðir frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við skólaslit vorannar 2026:
Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Stúdentsbraut – félagsvísindalína
Stúdentsbraut – opin lína
Sjúkraliðabraut
Húsasmiðabraut
Iðnmeistaranám

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.