Hipsumhaps á Þjóðhátíð

Hljómsveitin Hipsumhaps mun koma fram á Þjóðhátíð í ár, þetta kom fram í tilkynningu frá samfélagsmiðlum þjóðhátíðar í dag. Tilkynnt hefur verið um fjölda listamanna á hátíðinni síðustu vikur og bætist Hipsumhaps nú í þann hóp sem mun skemmta þjóðhátíðargestum í sumar. Hipsumhaps á þekkta slagara á borð við LSMLÍ (Lífið sem mig langar í), […]

Stuttir túrar skiluðu góðum afla

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Neskaupstað í gær og í dag að loknum stuttum veiðiferðum. Vestmannaey landaði í gær um 60 tonnum af ýsu og þorski og sagði Birgir Þór Sverrisson skipstjóri í samtali við vef Síldarvinnslunnar að vel hefði gengið að veiða. „Við byrjuðum á Undirbyrðishrygg sunnan við Hvalbakinn en fórum […]

Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum

Heimaey VE

Loðnuvertíðinni sem lauk í mars skilaði ekki aðeins góðri afkomu fyrir Ísfélagið heldur einnig mjög góðum tekjum fyrir áhafnir skipanna. Í tilkynningu með uppgjöri félagsins kemur fram að hásetahlutur á Sigurði VE og Heimaey VE hafi verið á bilinu 8,7 til 8,9 milljónir króna, án orlofs, eftir leiðréttingar samkvæmt kjarasamningum. Vertíðin stóð yfir í 41 […]

Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu

Stefnt er að því að halda tónleika með SSSÓL í Höllinni föstudaginn 5. júní í tilefni sjómannadagshelgarinnar. Miðasalan hefur hins vegar farið hægt af stað og sendi Höllin nýverið frá sér tilkynningu þar sem fólk er hvatt til að tryggja sér miða í forsölu ætli það sér að mæta á tónleikana. Samkvæmt tilkynningunni hefur forsalan […]

Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til

Það furða sig kannski sumir á því hvers vegna ég skuli enn einu sinni skrifa um Landeyjahöfn. Þó hún sé ekki barnið mitt þá ól ég hana upp og því rennur mér blóðið til skyldunnar þegar mér finnst henni ekki sinnt sem skyldi og að henni vegið. Síðustu átta ár hefur lítið verið gert til […]

Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár

Eldri ökumenn þurfa framvegis ekki að leggja fram læknisvottorð við endurnýjun ökuskírteinis fyrr en þeir hafa náð 75 ára aldri. Þetta er meðal breytinga á reglugerð um ökuskírteini sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Fram að þessu hefur almennt verið krafist læknisvottorðs við endurnýjun ökuskírteina frá 65 ára aldri, en með […]

Vel heppnað söngkvöld og aðalfundur

Aðalfundur Á.t.V.R. var haldinn í gærkvöldi, 28. maí, í sal Kiwanis-félagsins Eldeyjar í Kópavogi og hófst með stuttum en skemmtilegum fundarstörfum, þar sem hefðbundin aðalfundarmál voru tekin fyrir. Á fundinum var ný stjórn félagsins kjörin. Í stjórn Á.t.V.R. sitja nú: Rúnar Ingi Guðjónsson, Petra Fanney Bragadóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Dögg Lára Sigurgeirsdóttir og Svala Helga Sigurðardóttir. […]

Lögregla bíður gagna áður en næstu skref verða tekin í andlátsmáli

Hraunb IMG 3125 2

Lögreglan á Suðurlandi segir stöðu rannsóknar á andláti á Hraunbúðum í lok janúar vera óbreytta að svo stöddu. Beðið sé eftir frekari gögnum áður en hægt verði að taka næstu skref í málinu. Þetta kemur fram í svari Rúnars Þórs Steingrímssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi, við fyrirspurn Eyjafrétta. „Við höfum engar aðrar fréttir af […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.