Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Heimaey VE
Myndin er tekin á síðustu loðnuvertíð. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Loðnuvertíðinni sem lauk í mars skilaði ekki aðeins góðri afkomu fyrir Ísfélagið heldur einnig mjög góðum tekjum fyrir áhafnir skipanna. Í tilkynningu með uppgjöri félagsins kemur fram að hásetahlutur á Sigurði VE og Heimaey VE hafi verið á bilinu 8,7 til 8,9 milljónir króna, án orlofs, eftir leiðréttingar samkvæmt kjarasamningum.

Vertíðin stóð yfir í 41 dag, frá 7. febrúar til 19. mars, en skipin voru hvort um sig á sjó í um 350 klukkustundir, eða tæplega 15 daga.

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, segir í yfirlýsingu sinni að árangurinn sé afrakstur mikilla fjárfestinga félagsins undanfarin ár í skipum og vinnslum sem geri kleift að hámarka verðmætasköpun á stuttum vertíðum.

„Það er afar ánægjulegt hversu vel til tókst að skapa þessi verðmæti sem verða til vegna góðra og samhentra áhafna, góðs sölustarfs og síðast en ekki síst öflugs starfsfólks í landi,“ segir Stefán.

Þessu tengt: Ísfélagið með 2,8 milljarða króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.