Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Stefnt er á að halda tónleika með SSSól næstkomandi föstudag.

Stefnt er að því að halda tónleika með SSSÓL í Höllinni föstudaginn 5. júní í tilefni sjómannadagshelgarinnar. Miðasalan hefur hins vegar farið hægt af stað og sendi Höllin nýverið frá sér tilkynningu þar sem fólk er hvatt til að tryggja sér miða í forsölu ætli það sér að mæta á tónleikana.

Samkvæmt tilkynningunni hefur forsalan verið undir væntingum og verður endanleg ákvörðun um framhaldið tekin eftir helgi, þó ekkert bendi til annars en að stefnt sé að því að halda tónleikana.

Undirbúningur fyrir viðburðinn hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hefur bæði verið fjárfest í nýju hljóðkerfi og ljósabúnaði til að gera tónleikaupplifunina sem glæsilegasta.

„Við höfum orðið vör við mikinn áhuga á tónleikunum þótt ekki séu margir búnir að tryggja sér miða ennþá,“ segir í tilkynningu frá Höllinni.

Því eru allir sem hyggjast mæta hvattir til að kaupa miða á næstu dögum. Ef tónleikarnir yrðu af einhverjum ástæðum ekki haldnir yrðu miðar endurgreiddir að fullu.

Einnig er boðið upp á hópapantanir fyrir þá sem vilja mæta saman á tónleikana.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.