Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Vestmannaey VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu í Neskaupstað í gær og í dag að loknum stuttum veiðiferðum.

Vestmannaey landaði í gær um 60 tonnum af ýsu og þorski og sagði Birgir Þór Sverrisson skipstjóri í samtali við vef Síldarvinnslunnar að vel hefði gengið að veiða. „Við byrjuðum á Undirbyrðishrygg sunnan við Hvalbakinn en fórum svo í Litladýpið þar sem fékkst ágætur þorskur. Í túrnum var suðvestan kaldi og heldur þungur sjór,” sagði Birgir Þór.

Bergey kom síðan að landi í morgun með fullfermi og var aflinn mest ýsa og þorskur. Jón Valgeirsson skipstjóri var sáttur við túrinn. „Þetta var ágætis kropp. Við tókum fyrsta holið við Þorskhausinn, sem er á Breiðdalsgrunni austur af Hvalbaknum. Síðan vorum við að veiðum við Hvalbakinn allan tímann og þetta gekk bara vel,” sagði Jón.

Vestmannaey hélt á ný til veiða í gærkvöldi og Bergey mun halda til veiða síðdegis í dag eða í kvöld, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.