Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Óskar Pétur fór um víðan völl á Goslokum og hér að neðan má sjá sýnishorn var myndum sem hann tók á laugardaginn.
Hressar stúlkur á Goslokum.

Laugardagurinn á Goslokahátíð var viðburðaríkur frá morgni til kvölds og bauð upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í boði voru íþróttaviðburðir, listsýningar, fjölskylduskemmtun, tónlist, markaðir og opið hús víðs vegar um Vestmannaeyjar. Veðrið lék við gesti og nutu bæði Eyjamenn og gestir þess að sækja fjölmarga viðburði dagsins.

Dagurinn hófst snemma með Icelandair Volcano Open hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja og dorgveiðikeppni SJÓVE á Básaskersbryggju. Yfir daginn gátu gestir heimsótt fjölmargar sýningar, meðal annars í Sagnheimum, Landlyst, Eldheimum, Svölukoti, Akógesi, Hvíta húsinu og Gallerý Skúrnum.

Fjölskyldufólk hafði úr mörgu að velja. Björnis brunabangsi tók á móti gestum á slökkviliðsstöðinni og síðar um daginn fór fram fjölskylduskemmtun Ísfélagsins á Vigtartorgi með fjölbreyttri dagskrá. Þá fór hið vinsæla Gosloka- og litahlaup Ísfélagsins fram við mikla þátttöku.

Listalífið var áberandi allan daginn með fjölda sýninga og opnum vinnustofum, auk pop-up markaðar í húsnæði Taflfélagsins og útilistasýningar á Stakkó. Margir lögðu einnig leið sína í Fágætissafnið þar sem til sýnis voru einstakir gripir úr fyrsta varðskipi þjóðarinnar, Þór.

Íþróttir voru einnig í sviðsljósinu þegar meistaraflokkur karla hjá ÍBV tók á móti Val á Hásteinsvelli síðdegis. Heimamenn fögnuðu þar dýrmætum 1:0 sigri á Valsmönnum.

Tónlist setti einnig sterkan svip á daginn. Trúbadorinn Aron Daði Hauksson skemmti gestum á Bárugötu og um kvöldið lauk dagskránni með glæsilegri kvöldskemmtun á Vigtartorgi. Þar var mikið fjör fram eftir kvöldi þegar hljómsveitin memm lék fyrir dansi.

Laugardagurinn staðfesti enn á ný hvers vegna Goslokahátíðin er glæsilegasta bæjarhátíð landsins. Hátíðin fór afar vel fram og öllum þeim fjölmörgu sem komu að skipulagningu og framkvæmd hennar til mikils sóma. Mikill fjöldi gesta lagði leið sína til Vestmannaeyja um Goslokahelgina þar sem menning, íþróttir, fjölskylduskemmtun, fjölbreytt mannlíf og einstök hátíðarstemning fóru saman um allan bæ.

Myndirnar tók Óskar Pétur sem líka leit við hjá Helgu og Arnóri sem bjóða upp á mikla listaveislu á heimili sínu á hverri Goslokahátið. Framtak sem margir kunna að meta.

 

 

Nýjustu fréttir

Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.