Wild-to-table matreiðsluupplifun

Sjávarréttahátíðin MATEY verður haldin 8., 9. og 10. september 2022.

Á hátíðinni verða í boði fjölmargar útfærslur af fiski veiddum í kringum Eyjarnar og framleiddum hjá hinum öflugu fiskvinnslum í Eyjum og matvælaframleiðendum eins og t.d. Ísfélaginu, VSV, Leo Seafood, Grími kokki,  Marhólmum, Aldingróðri og Iðunni Seafood.

Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn, Einsi kaldi og Næs munu bjóða upp á margrétta sérseðla ásamt nokkrum af bestu matreiðslumönnum á Norðurlöndunum sem taka þátt í hátíðinni sem gestakokkar.  Á Tanganum, Kránni og Gott verða í boði sérréttir og Brothers Brewery bjóða upp á nýjan bjór, Okkar eigin hvönn, í tilefni hátíðarinnar. 

Matur í sinni minnst unnu mynd
Hjónin Junayd frá Trinidad & US og Fjölla frá Kosovo, opnuðu Honey Badger árið 2016 og sköpuðu þannig nýja villt-til-borðs (wild-to-table) matreiðsluupplifun sem vantaði í hverfinu þeirra, Prospect Lefferts Garden, New York.

Junayd og Fjölla eru stolt af góðum og sterkum samskiptum sínum við bændur og fæðuframleiðendur í nærumhverfi þeirra, allt frá Pennsylvaníu til Labrador.

Þessir skapandi kokkar bjóða upp á matseðil í Omakase-stíl sem undirstrikar hið mikla framboð í norðurhlutanum með hverju tímabili sem breytist. Með því að forgangsraða mat í sinni minnst unnu mynd, brýtur Honey Badger keðjuna með því að afbyggja rétti á hátt sem margir veitingastaðir hafa ekki reynt að gera.

Glæsilegt rými veitingastaðar þeirra í New York var byggt frá grunni og hannað með hjálp frá hinni tilkomumiklu ungu dóttur þeirra, Ninu, sem hafði hönd í bagga með mörgum þáttum í hönnun veitingastaðarins. Frá opnu eldhúsi rýmisins til brossins á andlitum þeirra, nota Junayd og Fjölla hvert tækifæri til að deila sögu sinni, frá minningu til máltíðar fyrir alla þeirra viðskiptavini sem þau taka hlýlega á móti.

Nýjustu fréttir

Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.