Í byrjun þessa mánaðar fór í loftið hlaðvarpið Loðnufréttir í umsjá Ingva Þórs Georgssonar ritstjóra Loðnufrétta.is. Viðmælandi í nýjasta þættinum er Birkir Agnarsson, rekstrarstjóri Ísfell í Vestmannaeyjum þar sem fjallað er um aðkomu Ísfell og þeirra þjónustu í kringum vertíðina.
Birkir er með um 40 ára starfsreynslu við veiðarfæragerð. Spurður um minnistæðustu vertíðina þá segir hann skemmtilegast þegar sem flestir bátar komast að og mikill kvóti svo það sé mikið fjör í höfnunum.
Í þættinum gerir Birkir sitt besta til að útskýra fyrir þáttastjórnanda og öðrum hlustendum á mannamáli muninn á loðnuflotvörpu, nótum og öllum veiðarfærum sem notuð eru við veiðar á loðnu og tekur dæmi af notkun þeirra við ólíkar aðstæður.
Auðvitað er það svoleiðis að sumir viðskiptavinir biðja um hæng eða hrygnu og þá er
nótin auðvitað best. Einnig segir Birkir frá vöruþróun í veiðarfæragerð, samstarfi við
sjómenn og hvernig gæði og framþróun í íslenskri veiðarfæragerð hefur verið í gegnum árin. “Við erum alltaf að reyna að gera betur í dag heldur en í gær.”
Fjöldi tonna í kasti, þéttar torfur, dýpi og fleira kemur við sögu í þessum stóráhugaverða
þætti við vestmannaeyinginn geðuga. Að lokjum mælir Birkir með loðnunni steiktri á pönnu.
https://open.spotify.com/episode/6EqO1Y46EItsZy9zPuiygb




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.