Þýsk – íslenskur jazz í Eldheimum

Það er ánægjulegt að geta boðið upp á jazz meðal viðburða á stóra gosárinu. Klukkan 17.00 laugardaginn 25. febrúar verða jazztónleikar í Eldheimum. Þar koma fram hinir hálfíslensku jazzistar Lars Duppler, píanó og Stefán Karl Schmid saxófón og klarínett. Þeir eru  margverðlaunaðir og eftirsóttir í þýsku jazzsenunni og nú eru þeir með dagskrá sem þeir sækja í sínar íslensku rætur.

Á tónleikunum flytja þeir m.a. túlkun sína á þjóðþekktum íslenskum lögum eins og Númarímur, Heyr himna smiður og Sveitin milli sanda.

Frítt er inn, en frjáls framlög til tónlistarmannanna eru auðvitað vel þegin.

 

 

Nýjustu fréttir

Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.