Forval vegna útboðs á nýjum streng opnað í september

Viðgerð Landsnets á Vestmannaeyjastreng 3 (VM3) til Vestmannaeyja lauk í byrjun ágúst, eftir að bilun kom upp í strengnum í janúar á þessu ári. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets sagði í samtali við Eyjafréttir viðgerðina hafa gengið vel.

Fram hefur komið að Landsnet vinnur áfram að undirbúningi að lagningu nýrra sæstrengja til Vestmannaeyja til þess að efla og tryggja afhendingaröryggi enn frekar til framtíðar. Steinunn segir þá vinnu í farvegi. „Við erum í góðri samvinnu við skipulagsaðila í Vestmannaeyjum og Rangárþingi Ytra varðandi lagnaleiðir og ætti niðurstaða að liggja fyrir á næstu vikum. Forval vegna útboðs á sæstreng verður opnað í september. Unnið er að hönnun og gerð útboðsgagna vegna lagningu jarðstrengja. Hönnun rafbúnaðar í tengivirkjum í Vestmannaeyjum og Rimakoti er á áætlun og stefnt að útboði á haustmánuðum.  Það er mikið álag hjá öllum framleiðendum sæstrengja og hjá fyrirtækjum með skip til lagningu strengja. Það mun skýrast á næstu þremur mánuðum hvernær við getum hafist handa við að leggja strengina,“ sagði Steinunn.

Nánar er rætt við Steinunni um málið í nýjasta tölublaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.