Fjarheilbrigðisþjónusta er byggðamál
Aðkoma sjúkrabíla verður framvegis norðan megin

Byggðamál snerta flesta, ef ekki alla, málaflokka ríkisins og í stefnumótandi byggðaáætlun er lögð áhersla á samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Af 44 aðgerðum byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2026 eru 32 aðgerðir á ábyrgð annarra ráðuneyta en innviðaráðuneytis og tengjast málefnasviðum þeirra. Ein af þeim er aðgerð A.5 Fjarheilbrigðisþjónusta. Markmið með þeirri aðgerð er að aðgengi að heilbrigðisþjónustu verði aukið og bætt með nýsköpun og nýtingu tækni og fjarskipta við framkvæmd þjónustu.

Byggðaáætlun leggur 20 m.kr. á ári til aðgerðarinnar sem heilbrigðisráðuneytið ber ábyrgð á. Nýverðið úthlutaði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra 55 milljónum kr. til 18 verkefna á sviði gæða- og nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu. Verkefnin hafa öll að markmiði að bæta þjónustu við notendur og stuðla að greiðara aðgengi með stafrænum lausnum. Styrkir til hvers verkefnis eru á bilinu 2-4 m.kr.

Í ár var annars vegar lögð áhersla á verkefni sem stuðla að jafnari aðgengi almennings um land allt að almennri og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, líkt og fjallað er um í aðgerðinni á byggðaáætlun. Hins vegar var áhersla lögð á verkefni sem styðja við framkvæmd tillögum viðbragðsteymis heilbrigðisráðuneytisins um bráðaþjónustu á landsvísu. Þess má geta að byggðaáætlun styður einnig við bráðaþjónustu í gegnum A.3 Bráðaviðbragð neyðarþjónustu sem er á sameiginlegri ábyrgð heilbrigðisráðuneytis og dómamálaráðuneytis.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.