Hjalti og Vera Björk á flótta frá Ísrael
9. október, 2023

„Við komum hingað á miðvikudaginn síðasta og erum búin að vera hér í fimm daga. Höfum verið á slóðum Jesús Krists en verðum að sleppa helmingi ferðarinnar vegna stríðsins sem hófst á laugardaginn,“ sagði Hjalti Kristjánsson, læknir í Vestmannaeyjum þegar rætt var við hann upp úr tíu í morgun. Hann var þá á leið í rútu frá Jerúsalem í Ísrael til Amman í Jórdaníu. Með honum voru Vera Björk Einarsdóttir, eiginkona hans og hópur Íslendinga.  Til Amman var væntanleg flugvél frá Icelandair sem send var til að flytja heim Íslendinga sem staddir voru í Ísrael þegar Hamassamtökin hófu árás á Ísrael á laugadaginn.

„Ferðaskrifstofan metur það þannig að ástandið hér sé mjög ótryggt og réttast að við förum heim. Og öruggasta leiðin sé í gegnum Amman og eigum við bókað flug þaðan í kvöld til Rómar. Þaðan fljúgum við heim og verðum komin einhvern tímann í nótt eða fyrramálið að íslenskum tíma.“

Hjalti og Vera Björk eru í 35 manna hópi Íslendinga og þau einu frá Eyjum. „Annar hópur fór ekki sömu leið og við. Við höfum séð sprengjuregn á leiðinni því það eru enn átök á Vesturbakkanum og innan Ísraels. Þeir hafa ekki allir náðst Hamasmennirnir sem réðust  inn í landið. Við fylgdumst með atburðunum í gegnum CNN og fararstjórinn var í sambandi við ferðaskrifstofuna heima. Annar fararstjórinn er ísraelskur og tók þátt í Sex daga stríðinu 1967 og var sjálfboðaliði í Yom Kippur stríðinu 1973. Hann fór með okkur á Golanhæðirnar sem barist var um 1967. Var mjög áhrifaríkt að heyra hann lýsa átökum í þessum stríðum. Svo byrjuðu lætin daginn eftir,“ sagði Hjalti.

Ekki urðu þau vör við átökin meðan þau voru í Jerúsalem en á leiðinni að landamærunum sáu þau sprengingar ekki svo langt í burtu. „Við eigum eftir um tvo tíma að landamærunum og svo tekur við akstur til Amman,“ sagði Hjalti þegar rætt var við hann. Stuttu seinna hringdi hann og sagði það ósk utanríkisráðuneytisins að þau létu ekki vita af sér. Það væri gert af öryggisástæðum.

Komin í loftið

Rétt í þessu sendi Hjalti skilaboð um að þau væru komin í loftið. „Þvílík stemning um borð. Klappað fyrir starfsfólkinu og allir svo glaðir,“ sagði Hjalti. „Hálfmeyr og mikill léttir. Útlendingarnir fengu líka ræðu og klöppuðu mikið. Vissi að þessi ferð yrði einstök, upplifun og er uppnuminn. Erum komin í loftið.“

Samkvæmt síðustu fréttum er áætlað að vélin lendi í Keflavík snemma í fyrramálið.

Myndin var tekin úr rútunni í dag og sést reykur stíga upp þar sem sprengjur hafa fallið.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.