Þjónustusamningur um rekstur Herjólfs endurnýjaður

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að skrifað var undir endurnýjaðan þjónustusamning um rekstur Herjólfs í dag en það gerðu Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2026 með möguleikaum á framlengingu í tvö ár til viðbótar.

Samningurinn byggir á reynslu síðustu ára í rekstri Vestmannaferjunnar Herjólfs sem Herjólfur ohf. hefur séð um fyrir Vestmannaeyjabæ.

Reynsla í rekstri skipsins hefur verið lærdómsrík þar sem verið er að láta reyna á nýja tækni á rafmagnsknúnu skipi, tengitvinnferju.  Skipið hefur reynst vel í alla staði og horfa aðilar samnings bjartir fram á veginn í framtíð siglinga með Herjólfi á milli lands og Eyja.

Verðmæti samningsins er áætlað á ársgrundvelli 818 m.kr  en er háð fjárveitingum ríkissjóðs á hverju ári.

Bergþóra Þorkelsdóttir sagði ánægjulegt að hafa endurnýjan samninginn og halda þannig áfram að þróa reksturinn því í raun hafi verið um þróunarverkefni að ræða síðan að nýr Herjólfur tók við siglingum.

Nýjustu fréttir

Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.