Karlarnir í fjögurra liða úrslit

Eftir heldur brokkgenga byrjun ÍBV eftir jólafrí, bæði í meistaraflokki karla og kvenna í Olísdeildinni náðu karlarnir góðum spretti í dag. Eru komnir í undanúrslit í bikarnum eftir sjö marka sigur á Aftureldingu á heimavelli, 34:27. Staðan í hálfleik var 15:14.

Þar með eru Eyjamenn komnir í fjögurra liða úrslit bikarsins sem fer fram í Laugardalshöllinni aðra helgi í mars. Hlýtur að teljast gott veganesti að slá út Bikarmeistarna frá í fyrra. Og ekki síður í  titilvörninni í Olísdeildinni þar sem ÍBV stóð uppi sem sigurvegari í fyrra.

Markahæstir hjá ÍBV voru Elmar og Arnór með sex mörk, Dagur í Kári með 5 en alls náðu 11 leikmenn að koma boltanum í netið hjá andstæðingunum. Pavel varði 7 skot og Petar 5.

Mynd Sigfús Gunnar.

Elmar skoraði sex mörk í leiknum.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.